Mynd: Mjólkurbúðin í Listagili.
Helgina 22.-23. mars verður sýning á tekötlum úr jarðleir í Mjólkurbúðinni í Listagilinu. Katlana gerðu þrettán
konur á námskeiði hjá Sigríði Ágústsdóttur leirkerasmiði. Unnið var með hvítan og rauðan jarðleir og katlarnir
mótaðir í höndum frá grunni.
Námskeiðin fóru fram í handverksmiðstöðinni Punktinum sem er lifandi og opinn staður fyrir unga sem aldna. Boðið er upp á margskonar
námskeið á Punktinum og eru leirmótunarnámskeið meðal þess sem í boði er.
Opið verður laugardaginn 22. mars og sunnudaginn 23. mars frá kl. 14-17.