Menningarhúsið Hof í samstarfi við Sparisjóð Höfðhverfinga heldur barnamenningarhátíðina Börn fyrir börn í
þriðja sinn sunnudaginn 16. febrúar. Barnafjör verður í Hömrum og hátíðardagskrá í Hamraborg.
Dagskrá:
Barnafjör í Hömrum
Hjalti Jónsson og Eva Reykjalín halda uppi fjörinu. Söngur, dans og gleði. Enginn aðgangseyri, allir velkomnir.
Kl. 11.00: Dagskrá fyrir börn á aldrinum tveggja til fimm ára.
Kl. 12.00: Dagskrá fyrir börn á aldrinum sex til níu ára.
Hátíðardagskrá í Hamraborg
KL. 13.00-14.30.
Fram koma:
- Sigurvegarar í hæfileikakeppni barna á Norðurlandi, þau Alfreð Steinmar Hjaltason, Birkir Blær Óðinsson, Eik Haraldsdóttir,
Sigríður Harpa Magnúsdóttir, Sigurður Bogi Ólafsson og Vilhelm Ottó Biering
- Friðrik Ómar og Jógvan Hansen
- Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri
- Hljómsveit undir stjórn Daníels Þorteinssonar
- Kynnir verður Lalli töframaður
Í tengslum við viðburðina verða ungir listamenn á ferðinni í Hamragili, leikarar úr Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri og
tónlistaratriði í umsjón Nemendafélags Tónlistarskólans á Akureyri.
Miðaverð er 700 kr. og tekið er við frjálsum framlögum sem renna til Barnadeildar FSA.