Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir athafnasvæði við Grænhól.
Skipulagssvæðið afmarkast af lóð Sjafnargötu 2. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 1173 m2 til austurs fyrir 600-700 m2 þjónustu- og skrifstofuhúsnæði ásamt athafnasvæði.
Skipulagstillöguna má nálgast hér . Tillagan verður auk þess aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 10. maí til 26. júní 2023
Hægt er að skila inn athugasemdum við skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 26. júní 2023.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.