Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 5. nóvember 2019 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 vegna Hólasandslínu 3.
Breytingin felur í sér breytingu á legu Hólasandslínu 3 á tveimur stöðum. Annars vegar á svæði sunnan flugvallar og hins vegar á svæði meðfram reiðvegi norðan frístundasvæðis við Kjarnalund.
Breytingin telst óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til skipulagssviðs Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð.
13. nóvember 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs