Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 8. júlí 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Jóninnuhaga 6.
Breytingin felur í sér að nýtingarhlutfall hækkar úr 0,51 í 0,56, lóð undir bílastæði stækkar úr 96 m² í 129,6 m², íbúðum fjölgar úr fjórum íbúðum í sjö íbúðir.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 20. ágúst 2020,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 3. september 2020