Oddeyrargata – Brekkugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar

Tillaga að breyttu deiliskipulagi
Tillaga að breyttu deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar.

Skipulagssvæðið afmarkast af gatnamótum Oddeyrargötu og Brekkugötu og gerir tillagan ráð fyrir endurbótum gatnamótanna til að bæta öryggi óvarinna vegfarenda.

Deiliskipulagsuppdrátt má sjá hér.

Tillöguuppdrátt ásamt greinargerð má nálgast hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 5.júlí - 21.ágúst 2023.

Athugasemdum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri til 21.ágúst 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan