Bifreiðastæðasjóður Akureyrarbæjar hefur bætt við nýjum greiðsluleiðum á vefsvæði sínu www.akureyri.is/bilastaedi.
Um er að ræða greiðsluform sem gerir ökumönnum sem leggja í miðbænum kleift að greiða fyrir gjaldskyld stæði með greiðslukorti, engin aukagjöld eru innheimt.
Annað greiðsluform á sömu vefsíðu er notað til að greiða álagt stöðvunarbrotagjald (sekt). Áfram stofnast sektarkrafa í netbanka bíleiganda eða umráðamanns. Greiðsluformið á vefnum er hugsað fyrir ökumenn sem ekki eru á eigin bíl, t.d. bílaleigubíl eða fyrirtækisbíl.
English:
Akureyri parking fund has added new payment forms on its web site www.akureyri.is/parking.
One form enables drivers who park downtown Akureyri to pay for parking with a credit card without service fees.
Another form is for paying parking fines. This form makes it easy for drivers who are driving i.e. rental cars, or tourists who do not have an Icelandic bank account, to pay for parking fines on-line.