Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Frístundaráð Akureyrarbæjar auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar ráðsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf að jafnréttismálum í samræmi við Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.
Viðurkenningu geta hlotið:
Fyrirtæki sem hafa:
- Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
- Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum
Félög/félagasamtök sem hafa:
- Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
- Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttismál
Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttismálum.
Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 28. febrúar nk. til frístundaráðs, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið samfelagssvid@akureyri.is.