Endurskoðun á reglum um lokanir gatna í miðbæ Akureyrar

Mynd: Bjarki Freyr Ingólfsson
Mynd: Bjarki Freyr Ingólfsson

Skipulagsráð vinnur nú að breytingum á reglum um lokanir gatna í miðbænum (sjá gildandi samþykkt hér). Fyrsti áfangi þeirrar vinnu eru tillögur að aukinni lokun þess hluta Hafnarstrætis sem kallast Göngugata og eru tveir kostir lagðir fram til kynningar:

1. Gatan lokuð alla daga í júní, júlí og ágúst frá klukkan 11-19.
2. Gatan lokuð sem hér segir:

  • júní: fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá klukkan 11-19.
  • júlí: alla daga frá klukkan 11-19.
  • ágúst: fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá klukkan 11-19.

Óskað er eftir viðbrögðum hagsmunaaðila og íbúa við ofangreindum tillögum. Athugasemdum og ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til og með 22.apríl 2022.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan