Mynd: Daníel Starrason.
Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2018 er komin út. Lítil spurn hefur verið eftir að fá skýrsluna prentaða á liðnum árum og því verður hún ekki prentuð að þessu sinni frekar en síðustu þrjú árin. Það er hvort tveggja umhverfisvæn aðgerð og felur um leið í sér dálítinn sparnað fyrir sveitarfélagið.
Óski einhver eftir að fá skýrsluna á pappír þá getur viðkomandi snúið sér til þjónustuver Akureyrarbæjar í Ráðhúsinu að Geislagötu 9.
Ársskýrslur bæjarins og fleira útgefið efni má nálgast hér á heimasíðunni.